
Hljómeyki í 40 ár / Hljómeyki Chamber Choir Anniversary Concert
Þann 23. mars árið 1974 hélt Sönghópurinn Hljómeyki fyrstu tónleika sína í Norræna húsinu. Hópurinn hefur starfað nær óslitið síðan og nú syngur þriðja kynslóð söngvara með hópnum.
Við gleðumst yfir farsælu starfi með því að grípa niður í fjársjóðskistuna og flytja að nýju nokkur þeirra verka sem hljómað hafa á tónleikum Hljómeykis í gegnum tíðina. Auk Hljómeykis koma þau Hallveig Rúnarsdóttir söngkona, Stefán Jón Bernharðsson hornleikari og Hrönn Þráinsdóttir fram á tónleikunum. Stjórnandi Hljómeykis er Marta Guðrún Halldórsdóttir.
Sönghópurinn Hljómeyki var stofnaður árið 1974. Hópurinn starfaði fyrstu árin undir stjórn Rutar L. Magnússon og flutti þá aðallega veraldlega tónlist frá ýmsum löndum. Árið 1986 var tekin upp samvinna við Sumartónleika í Skálholti og hefur kórinn síðan þá lagt megináherslu á flutning nýrrar íslenskrar tónlistar. Í Skálholti hefur Hljómeyki flutt ný verk eftir mörg helstu tónskáld landsins.
Hljómeyki hefur einnig tekið þátt í óperuuppfærslum og má þar nefna Dido og Æneas eftir Purcell, útvarpsupptöku af Orfeusi og Evridís eftir Gluck og Orfeo eftir Monteverdi. Einnig tók hluti úr hópnum þátt í uppfærslu Íslenska dansflokksins, haust 2001. Hljómeyki hefur gefið út 4 geisladiska, með verkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Báru Grímsdóttur og Jón Nordal, í samvinnu við Mótettukór Hallgrímskirkju og fleiri eru í bígerð. Hljómeyki hefur einnig margoft sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt því að taka þátt í öðrum fjölbreyttum verkefnum, allt frá Eurovision til þungarokks.
Hljómeyki hefur frumflutt um 60 tónverk, innlend sem erlend, stór sem smá. Kórinn var einn 13 kóra um víða veröld sem pantaði og frumflutti verkið Glory and the Dream eftir Richard Rodney Bennett vorið 2001. Verkið og flutningurinn hér á landi fengu frábæra dóma.
Hljómeyki Chamber Choir is Iceland’s oldest chamber choir. It was founded in 1974 and gave its first concert the 23 March that same year. To mark the 40 year anniversary the choir now offers a program with pieces chosen from the repertoire through the last four decades.
Hljómeyki: Alda Úlfarsdóttir, Árni Áskelsson, Björn Hjaltason, Björney Inga Björnsdóttir, Brynhildur Auðbjargardóttir, Egill Gunnarsson, Einar Jóhannesson, Elín Arna Aspelund, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Guðmundur Arnlaugsson, Guðmundur Sigurjónsson, Gunnar Guðnason, Hákon Þrastar Björnsson, Heiðrún Hákonardóttir, Helga Magnúsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson, Oddur Smári Rafnsson, Ragnheiður Lárusdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir, Valborg Steingrímsdóttir, Þorbjörg Daphne Hall, Þorbjörn Rúnarsson
Gestasöngvari: Hallveig Rúnarsdóttir
Stjórnandi: Marta Guðrún Halldórsdóttir