
1.
Höfundur verksins Paquita er Marius Petipa fæddur í Frakklandi árið 1818. Hann er einn af okkar stórkostlegustu klassísku danshöfundum 19. aldar.
Dansverkið Paquita var frumsýnt í St. Pétursborg árið 1846
Tónlistin er eftir Ludwig Minkus
Paquita er rómantískt dansverk í tveimur þáttum, sem fjallar um spánska stúlku sem heitir Paquita og er alin upp af sígaunum.
Paquita verður ástfangin af frönskum aðalsmanni sem heitir Lucien. Þau koma úr ólíkum stéttum þjóðfélagsins og fá ekki að eigast.
Síðar í sögunni uppgötvast að sígaunarnir sem Paquita ólst upp hjá eru ekki fjölskylda hennar, heldur höfðu bjargað henni frá sjóræningjum þegar hún var á barnsaldri.
Sígaunarnir ná að finna fjölskyldu Paquitu og kemur þá í ljós að hún er dóttir aðalmanns.
Dansverkið endar á því að Lucien og Paquita fá að giftast.
Listrænn höfundur: Sæunn Ýr Marinosdóttir / Guðbjörg Astrid Skúladóttir
Ljósahönnuður: Tómas Ómarsson
2.
Frumsamið dansverk fyrir Klassíska Listdansskólan 2014
In memory of .... Your husband
Danshöfundur: Luis Delejo
Aðstoðarmaður: Sæunn Ýr Marinosdóttir
Tónlist: Maurice Ravel ( Martha Argerich, piano)
Ljósahönnun: Tómas Ómarsson
3.
Sýnt verður brot af nútímauppsetningu af Þyrnirós
Listrænn höfundur: River Carmalt
Aðstoðarmaður: Ernesto Camilo
Uppruni nútíma uppsetningu er Matthew Bourne
Tónlist: Pyrotr Ilyich Tchaikovsky
Ljósahönnun: Tómas Ómarsson