
Álftagerðisbræður flytja öll sín vinsælustu lög í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 13. apríl kl. 20.
Þessa síungu söngvasveina þarf eflaust lítið að kynna fyrir þjóðinni. Tónlist þeirra er sívinsæl í útvarpi og allt árið um kring eru Álftagerðisbræður á ferð og flugi um landið til þess að syngja fyrir þjóðina.
Sérstakir gestir: Ragnar Bjarnason og Karlakór Reykjavíkur
Tónlistarstjórar: Gunnar Þórðarson og Stefán R. Gíslason
Söngur:
Óskar Pétursson
Sigfús Pétursson
Pétur Pétursson
Gísli Pétursson
Ragnar Bjarnason
Karlakór Reykjavíkur
Hljómsveit:
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar