
Hljómsveitin Sign sendi frá sér sína fimmtu breiðskífu fyrir jól. Platan sú nefnist "Hermd" og er þeirra fyrsta plata síðan "The Hope" kom út árið 2007.
Hermd er þyngsta verk hljómsveitarinnar og var meðal annars tekin upp af upptökustjóranum Daniel Bergstrand sem á t.d. mikinn heiður af sándinu hjá Meshuggah, In Flames, Strapping Young Lad, Soilwork ofl.
Eins hefur platan fallið mjög vel í kramið hjá Sign aðdáendum víða um heiminn.
Leo Margarit trommuleikarinn úr sænsku prog-metal sveitinni Pain of Salvation sér um trommuleik á þessari plötu en hann mun einnig koma fram á útgáfutónleikum hljómsveitarinnar í Austurbæ.
"Öll Sign klíkan kemur þarna fram til að spila plötuna í heild sinni, það eru um 10 manna hópur" segir Ragnar Zolberg forsprakki sveitarinnar.
Ragnar Zolberg - gítar, söngur
Arnar Grétarsson - gítar
Hálfdán Árnason - bassi, söngur
Ragnar Ólafsson - hljómborð, söngur
Agnar Friðbertsson - hljómborð, gítar, söngur
Heimir Ólafur Hjartarson - bassi, söngur
Hrafnkell Örn - trommur
Leo Margarit - trommur
Mikael Hunter - söngur
ásamt upphitunahljómsveit: Different Turns