
Dúettinn Mirabai Ceiba er vel þekktur innan heims jóga- og möntrutónlistar.
Tónlist þeirra kemur frá hreinu rými kærleika og helgunar, hún upplyftir andanum og nærir hjartað.
Dúettinn skipa Markus Sieber og Angelika Baumbach en þau vefa saman söng, hörpu, píanó og gítar og skapa saman einstaka tónlist.
Mirabai Ceiba ferðast víða um heim og færir fólki tónlist sína en koma nú í fyrsta skipti til Íslands. Það er mikill fengur í því að fá dúóið til landsins, að hlusta á tónlist þeirra lætur engan ósnortinn.