
Hádegistónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar, Föstudagsfreistingar er löngum orðin þekkt meðal Akureyringa.
Að þessu sinni koma fram Ásdís Arnardóttir, selló, Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla og Petrea Óskarsdóttir, þverflauta.Þær munu flytja Sex Íslensk Þjóðlög eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Sóley eftir Guðrúnu Ingimundardóttur og L‘arco Rosa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
1862 Nordic Bistro matreiðir súpu sem tónleikagestir geta notið á meðan tónleikum stendur.
Hugljúf stund í hádeginu í Hofi!