Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Beethoven, Czerny og Chopin - Philipp Richardsen píanótónleikar -

$
0
0
Mynd

Á sínum fyrstu tónleikum á Íslandi, teflir píanóleikarinn Philipp Richardsen fram tveimur af æskuverkum Beethovens, píanósónötum, sem leiða yfir í verk sem Horowitz lýsti einhverju sinni sem “einu mest hrífandi og vanmetnasta píanóverki nítjándu aldarinnar”, Ricordanza tilbrigðin eftir einn nemenda Beethovens, Carl Czerny. Tónleikunum lýkur Richardsen svo með fjórum Ballöðum Chopins.

Dr. Richardsen hefur á ferlinum hlotið ýmis verðlaun fyrir píanóleik sinn í alþjóðlegum píanókeppnum.  Hann nam píanóleik, tónlistarsögu og lögfræði í Vínarborg hjá Michael Krist og hlaut doktorsgráðu í píanóleik frá Kaliforníuháskóla, Santa Barbara, þar sem hann nam hjá Paul Berkowitz. Hann hefur jafnframt sótt tíma til Elisso Visaladze, Richard Goode, Murray Perahia, Pascal Devoyon og André Watts.

Frumraun Philipps Richardsen í Carnegie Hall árið 2005 hlaut mikið lof gagnrýnenda, en hann hefur síðan margsinnis komið fram í sjónvarpi og útvarpi í Bandaríkjunum og Suður Kóreu, þar sem hann hefur kennt píanóleik og kammertónlist undanfarin fimm ár. Auk þess hefur hann ritað greinar um kóreskan tónlistariðnað og hlaut nýverið umfjöllun í The Korea Times dagblaðinu.

Tónleikarnir í Hörpu eru liður í tónleikaferðalagi Philipps Richardsen, en á ferðalaginu heldur hann m.a. tónleika í óperuhúsinu í Sydney, Musikverein í Vín, Gasteig í München og Carnegie Hall í New York.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.