
Tónleikarnir eru skemmtun og hátíðleiki í bland. Efnisskráin samanstendur af kórtónlist 20. aldar meistara, s.s Britten, Brahms, Taverner og Kodály, ásamt jólalögum sem allir þekkja. Verkin verða ýmist flutt í einsöng, tíó, kvartettum eð a stærri hópum.
Fram koma: Elma Atladóttir, eygló Rúnarsdóttir, Halldór Unnar Ómarsson, Pétur Pétursson, Ragnheiður Sara Grímsdóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir, Sigurjón Jóhannesson, Sæberg Sigurðsson, Tinna Sigurðardóttir, Úlfur Sveinbjarnarson og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir. Píanóleik annast Renata Ivan og stjórnandi er Egill Gunnarsson.