
Það er orðið töluvert síðan að Jón Jónsson og félagar hans héldu tónleika í fullri lengd. Nú skal því kippt í liðinn þegar þeir leika gömul lög í bland við ný í hinum fagra Austurbæ. Til að gera kvöldið enn skemmtilegra fékk Jón nýstirnið Steinar til að leika vel valin lög af nýju plötunni sinni, Beginning.
Eftir að hafa verið í Epískum frystiklefa í eitt ár fékk Jón Jónsson leyfi fyrir því að senda frá sér nýtt lag og fyrir valinu varð söngurinn Feel for You sem ómað hefur á öldum ljósvakans að undanförnu. Góð viðbrögð lagsins hafa blásið lífi í gamlar glæður hjá Jóni og félögum og eru þeir spenntir fyrir því að þíða Sony-klakann með ástríðufullum tónlistarflutningi.
Steinar skaust ansi skjótt og óvænt upp á stjörnuhimininn með lagi sínu Up en það náði toppi Lagalistans í upphafi nóvembermánaðar. Plata hans, Beginning, er nú komin í verslanir og því spennandi að sjá piltinn leika lög af frumburði sínum, lög sem öll fjalla um eina stúlku.
Þó tónleikarnir séu ekki með yfirskriftinni jólatónleikar þá er aldrei að vita nema jólaandinn svífi yfir vötnum í einstaka lagi enda ekki annað hægt svo skömmu fyrir hátíð ljóss og friðar.