
Söngfjelagið og góðir gestir syngja inn jólin
Jólatónleikar í Grafarvogskirkju
14. desember kl. 17 og 15. desember kl. 18.
Á efnisskránni verða þekkt og sígild jólalög í bland við nýrri tónlist frá ýmsum löndum.
Frumflutt verður nýtt jólalag eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson tónskáld, sem samið var fyrir Söngfjelagið af þessu tilefni.
Þetta er í þriðja sinn sem Söngfjelagið heldur tónleika á aðventunni. Er það í anda hátíðarlegrar hefðar sem stjórnandinn, Hilmar Örn Agnarsson, skapaði í Skálholti en hann stóð árum saman fyrir aðventutónleikum sem nutu mikilla vinsælda. Söngfjelagið heldur nú þessu starfi áfram í höfuðborginni.
Gestir Söngfjelagsins eru:
Vox Populi
Björg Þórhallsdóttir sópran
Kristjana Arngrímsdóttir alt
Ragnheiður Gröndal
Kammersveit:
Matthías Stefánsson fiðla
Hlín Erlendsdóttir fiðla
Helga Steinunn Torfadóttir fiðla
Ásdís Runólfsdóttir víóla
Örnólfur Kristjánsson selló
Þórir Jóhannsson kontrabassi
Peter Tompkins óbó
Elísabet Waage harpa
Kjartan Valdemarsson píanó
Mr Norrington
Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson