
Majonesjól - Jólatónleikar Stórsveitar Reykjavíkur
Stórsveit Reykjavíkur heldur árlega jólatónleika sína í Silfurbergi, Hörpu sunnudaginn 1. desember kl. 17. Einsöngvari verður hinn dularfulli og ástæli Bogomil Font en stjórnandi verður Samúel J. Samúelsson. Flutt verður öll tónlistin af hinum vinsæla geisladiski Majonesjól sem kom út 2006. Tónlistin er í léttum dúr, full af glettni og jólahúmor. Tónleikarnir verða rúmlega klukkustundarlangir, án hlés. Þeir eru ætlaðir fjölskyldufólki á öllum aldri.