
Bandaríska jaðarkántrísveitin Lambchop mun enda Evróputónleikaferð sína með tónleikum í Iðnó sunnudagskvöldið 7. júlí næstkomandi. Lay Low mun einnig koma fram á tónleikunum. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og standa til miðnættis.
Lambchop kemur frá Nashville og hafa verið starfandi í um 20 ár. Hún er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun og flutningi en þó halda í hefðir þjóðlaga- og sveitatónlistar Tennessee fylkis. Tónleikar Lambchop þykja mikil upplifun og því ættu tónlistarunnendur ekki að láta þá fram hjá sér fara.