Austurbær (gamla Austurbæjarbíó) hefur verið tekið rækilega í gegn. Öll gömlu bíósætin hafa verið fjarlægð og við blasir fallegasti og glæsilegasti danssalur Reykjavíkur. Það er eins og salurinn sé klæðskerasniðinn fyrir Pál Óskar. Hann lætur fólk einfaldlega bilast á dansgólfinu í Austurbæ, þeytir skífum, stjórnar stuðinu og passar upp á að allir syngi með.
Páll Óskar tekur auðvitað öll sín bestu lög ásamt dönsurum og draumaprinsum. Gerið ráð fyrir klassískum lögum eins og Gordjöss, Einn dans, Stanslaust stuð, La Dolce Vita, Allt fyrir ástina, International, Betra líf, TF-Stuð, Líttu upp í ljós, Ég er eins og ég er, Þú komst við hjartað í mér, Bundinn fastur, Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt, Söngur um lífið, Minn hinsti dans, Ást sem endist, Vinnum þetta fyrirfram og Ljúfa líf.
Slepptu þér á dansgólfinu í Austurbæ ásamt flottustu poppstjörnu Íslandssögunnar. Við lofum ógleymanlegri gleðisprengju.
Miðaverð í forsölu: kr. 2500.- til föstudagsins 8. nóv Frá og með miðnætti á balldegi lau 9. nóv kr. 3500.-
Forsala hér á midi.is margborgar sig!
Aldurstakmark 18 ára. Aldurstakmark við bar 20 ára.