Jól sko!
Dúkkulísurnar ætla enn á ný að fagna jólum víða um land. Glæný Dúkkulísu jólalög í bland við hin gömlu góðu jólalög og að sjálfsögðu verður nóg af rokki. Svarthvíta hetjan og Pamela í Dallas rokk og ról um heilög jól - gerist varla betra! Með í för verða gestirnir og heiðursmennirnir Magni og Stebbi Jak.
Tónleikarnir verða á eftirfarandi stöðum:
Kaffi Rauðka, Siglufirði 12. desember, kl 20:00
Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði 13. desember, kl 20:00
Hótel Aldan, Seyðisfirði 14. desember kl 16:00
Tehúsið, Egilsstöðum 14. desember kl 20:30
Bæjarbíó, Hafnarfirði 18. Desember kl 20:30