Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Mógil - Aðventa - Gunnarshús - Dyngjuvegi 8, Reykjavík

$
0
0

Sunnudaginn 3. nóvember mun hljómsveitin Mógil halda tónleika vegna útgáfu á nýjasta hljóðdiski sínum Aðventu. Diskurinn kemur út hjá þýska útgáfufélaginu „Winter and Winter“ í haust. Tónleikarnir verða haldnir klukkan 17:00 í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8 í Reykjavík. Tónlistin og textar á diskinum eru undir áhrifum frá hinni sígildu skáldsögu Aðventu eftir rithöfundinn Gunnar Gunnarsson (1889-1975). Orri Huginn Ágústsson leikari mun lesa upp valin texta úr bókinni á tónleikunum.

Tónlistin opnar heim fjárhirðisins Benedikts þar sem hann gengur aleinn uppi í fjalllendi Íslands á Aðventunni í leit að sauðfé, sem ekki hefur skilað sér við reglubundna smalamennsku. Í gegnum hana upplifir áheyrandinn stórkostlegt landslag, fimbulfrost og fárviðri en einnig góðmennsku, hlýju, kyrrð og ró ásamt mikilli einangrun og brostnum vonum.

Mógil skapar sinn eigin hljóðheim þar sem klassík, þjóðlagatónlist, djass og tilraunatónlist mætast á sérstakan hátt. Söngkona hljómsveitarinn er Heiða Árnadóttir, Joachim Badenhorst spilar á klarinett, Hilmar Jensson á gítar, Kristín Þóra Haraldsdóttir á violu og Eiríkur Orri Ólafsson á trompet.

Tónleikarnir eru styrktir af Reykjavíkurborg.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tropa Quotes


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Tagalog Love Quotes – Nagmamahal


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Long distances monthsary message tagalog


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.