Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 fyrir tónlistarhátíðina „Norður Og Niður“ sem haldin var af meðlimum Sigur Rósar. Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, tölvu og hljómborð, Róbert Sturla Reynisson á gítar og Magnús Tryggvason Eliassen á trommur.
Meðlimir hist og hafa starfað saman um árabil í ýmsum hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang. Þeir beina nú stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum. Auk spunatónlistar flytur tríóið tónlist úr ranni Eiríks þar sem form og uppbygging verða til í meðförum meðlima. Tónlistin er innhverf og slagþung blanda af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við. Þó hún sé nútímaleg í vissum skilningi er melódía og formfegurð í fyrirrúmi.
Fyrsta plata tríósins kemur út í september 2019 á vegum Reykjavík Record Shop. Platan var tekin upp í stúdíói Alberts Finnbogasonar í Iðnó og annaðist sá hinn sami upptökustjórn og hljóðblöndun.
Húsið opnar kl. 20:30 | Miðaverð er 2.500 kr.