Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Sigga Beinteins - Á Hátíðlegum nótum

$
0
0
Mynd

Á Hátíðlegum nótum. - Jólatónleikar SIggu Beinteins

Sigga Beinteins heldur sína árlegu  jólatónleika í Háskólabíói þann 13. og 14.desember næstkomandi.

Tónleikarnir bera titilinn “Á hátíðlegum nótum” enda er það það yfirbragð sem Sigga vill hafa á sínum tónleikum í bland við afslappað andúmsloft og einlæga nálgun eins og Siggu einni er lagið.

Sérstakir gestir Siggu í ár verða Egill Ólafsson og Valgerður Guðnadóttir.

Hljóðfæraleikarar:
Karl Olgeirsson á píanó / hlljómborð
Friðrik Karlsson á gítar
Róbert Þórhallsson á bassa
Benedikt Brynleifsson á trommur./ slagverk
Stefán Örn Gunnlaugsson á hljómborð.

Lagaval og uppsetning verður með svipuðu sniði í ár og undanfarin ár til að viðhalda þeim hátíðleika sem verið hefur aðalsmerki jólatónleika Siggu.

Meðal laga sem verða á tónleikunum má nefna; Ó helga nótt, Mót Betlehem, Hvít jól, Jólin koma með þér, Brú yfir boðaföllin, Senn koma jólin, Ave Maria og fleiri klassískar jólaperlur í bland við nýrri jólalög.

Hljóðblöndun: Magnús Rögnvalddson
Ljósahönnun: Agnar Hermannsson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696