Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Páll Óskar á Akranesi - Tónleikar

$
0
0

Annar í jólum er einn stærsti balldagur ársins á Akranesi.  Nú verður talið í alvöru Pallaball 26. desember í Gamla Kaupfélaginu, þar sem er tilvalið að hitta alla undir gleðisprengju frá stuðkónginum sjálfum.  Palli lætur Skaga- og nærsveitamenn einfaldlega bilast á dansgólfinu og passar upp á að allir syngi með. 

Þegar leikar standa sem hæst tekur hann öll sín bestu lög ásamt dönsurum og draumaprinsum. 

Gerið ráð fyrir klassískum lögum eins og Stanslaust Stuð, La Dolce Vita, Allt fyrir ástina, International, Betra Líf, TF-Stuð, Líttu upp í ljós, Ég er eins og ég er, Þú komst við hjartað í mér, Bundinn fastur, Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt, Söngur um lífið, Minn hinsti dans, Ást sem endist, Vinnum þetta fyrirfram, Ljúfa líf, Það geta ekki allir verið gordjöss.

Forsalan er hafin hér á midi.is og kostar miðinn kr. 2900.- til jóladags 25. desember.  Eftir það kostar miðinn kr. 3500.-  Forsala borgar sig.

Myndband Einn Dans

Myndband "Þá mætir þú til mín"

Myndband "Allt fyrir ástina"

Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696