Guitar Islancio fagnar sínu 20. starfsári. Tónleikar í Bæjarbíói í Hafnarfirði laugardaginn 27.október kl. 20:30
Á tónleikunum munu Guitar Islancio og gestir þeirra leika lög sem spanna þeirra 20 ára starfsferil, en tónleikadagskrá tríósins er skemmtileg blanda af frumsömdu efni, íslenskum og erlendum þjóðlögum og sígildum jazz- og popplögum og stemmning á tónleikum mikil, enda tríóið rómað fyrir kraftmikla og líflega spilamennsku. Gestir þeirra á þessum tónleikum verða Richard Gillis, trompetleikari frá Winnipeg í Kanada, en hann lék mikið með tríóinu á tónleikum þeirra í Kanada á síðasta áratug og m.a. á geisladisknum Connections sem kom út árið 2003 og Egill Ólafsson, en hann hefur, eins og Richard Gillis, margoft komið fram með tríóinu, bæði hér á landi og erlendis og auk þeirra verða einnig með þeim þau Unnur Birna Björnsdóttir, fiðluleikari og söngkona og Sigfús Örn Óttarsson, slagverksleikari.