Takið þetta U2 kvöld frá !!!
Föstudaginn 28. september næstkomandi verður mikið um dýrðir í Bæjarbíói þar sem tónlist U2 verður leikin af nokkrum af vandaðri einstaklingum íslenska poppgeirans. Þetta er í annað sinn sem þetta er sett upp í Bæjarbíói.
U2 er fyrir löngu orðin að einni stærstu, vinsælustu og áhrifamestu hljómsveitum allra tíma. Músíkin, bræðralagið og fagmennskan sem einkennir fjórmenningana er eitthvað sem aðrir tónlistarmenn stefna að allan ferilinn og er það ekki skrítið að nokkrir þeirra safnist saman og telji í nokkur af hinum ótalmörgu slögurum sem U2 hafa gefið heiminum.
Hljómsveitina skipa
Magni Ásgeirsson - Hewson
Biggi Nielsen - Mullen
Gunnar Þór - The Edge
Friðrik Sturluson - Clayton