Í tilefni af útgáfu disksins Ást & friður með Halla Reynis og Vigdísi verða haldnir útgáfutónleikar í Bæjarbíói fimmtudaginn 13. september kl. 20:30. Spiluð verða lög af disknum auk annarra laga eftir Halla Reynis.
Eftirfarandi tónlistarmenn koma fram:
• Halli Reynis: Söngur, gítar og munnharpa
• Vigdís Jónsdóttir: Harmonika, raddir
• Jóhann Ásmundsson: Kontrabassi
• Sigurgeir Sigmundsson: Gítar, Dobro, Steel Guitar