Ásgeir heldur í fyrsta skipti í tónleikaferðalag um Ísland þar sem hann kemur fram á alls 14 tónleikum dagana 17. júlí til 1. ágúst. Á tónleikunum frumflytur hann m.a. glænýtt efni sem mun prýða hans þriðju plötu sem væntanleg er í upphafi næsta árs. Um lágstemmda og hlýlega tónleika er að ræða þar sem rödd Ásgeirs fær að njóta sín en Ásgeir kemur fram ásamt Júlíusi Róbertssyni félaga sínum. Ásgeir gaf út sína aðra plötu, Afterglow, í maí á síðasta ári og hélt í kjölfarið í stíft tónleikaferðalag um Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Því tónleikaferðalagi lauk um páskana í Ástralíu. Nú er hann mættur aftur í hljóðver til að taka upp sína þriðju plötu fullur af orku. Þá kviknaði löngun til þess að ferðast um Ísland að sumri til með gítarinn einan að vopni til að prufukeyra hið nýja efni í bland við eldri lög. Einfalt skyldi það vera, rétt eins og við upphaf ferils Ásgeirs árið 2012 þegar hann og Júlíus vinur hans léku á fjölmörgum tónleikum við hin ýmsu tækifæri. Það fer nefnilega allt í hringi og stundum er gott að leita aftur í ræturnar, í upphafið, áður en næsti hringur hefst, samanber Hringsól.
Hringsól - dagsetningar:
17. Júlí
Bæjarbíó - Hafnarfjörður
18. Júlí
Hendur í Höfn - Þorlákshöfn
19. Júlí
Skyrgerðin - Hveragerði
20. Júlí
Midgard Basecamp - Hvolsvöllur
21. Júlí
Víkurkirkja - Vík í Mýrdal
22. Júlí
Havarí - Berufjörður
24. Júlí
Seyðisfjarðarkirkja - Seiðisfjörður
25. Júlí
Sláturhúsið - Egilsstaðir
26. Júlí
Gamli Bærinn - Mývatnssveit
27. Júlí
Kaffi Rauðka - Siglufjörður
28. Júlí
Græni Hatturinn - Akureyri
29. Júlí
Eldur í Húnaþingi - Ásbyrgi - Laugarbakki
31. Júlí
Vagninn - Flateyri
01. Ágúst
Frystiklefinn - Rif