Þakið ætlaði að rifna af Bæjarbíó þegar Sycamore Tree hélt sína fyrstu tónleika þar núna um páskana og nú gefst tækifæri til að sjá þau aftur. Fallegur galdraheimur tónlistar þeirra Gunna Hilmarssonar og Ágústu Evu Erlendsdóttur passar fullkomnlega við salinn fallega í Bæjarbíó. Sycamore Tree hefur komið eins og stormsveipur inn á tónlistarsviðið og fengið verðskuldaða athygli bæði innanlands sem og erlendis. Þau hafa átt fjöldamörg lög á vinsældarlistum og verið tilnefnd til og unnið til verðlauna. Þau eru nú að vinna að sinni næstu breiðskífu og munu spila efni af henni ásamt því að spila efni af sinni fyrstu plötu, Shelter. Ekki missa af einu magnaðasta tónlistarteymi undanfarinna ára föstudagskvöldið 1.júni. Þeim til fulltingis verða Arnar Guðjónsson og Unnur Birna Björnsdóttir.
↧