Síðan skein sól - órafmagnaðir á kvöldvöku í Gamla Kaupfélaginu. Kvöldvökurnar hafa heldur betur slegið í gegn og nú er komið að Helga Björns og félögum í Síðan Skein Sól.
Sólin var sú hljómsveit sem byrjaði snemma að tileinka sér þetta form á framkomu og fóru þó nokkrar tónleikaferðir þar sem einungis var leikið unplugged og verður nándin og tilfinningin oft hlýrri og persónulegri.
Lög sem fá ekki að heyrast eins oft þegar rokkið er allsráðandi, en fá að blómstra unplugged, lög eins og Ég stend á skýi, Kartöflur, Svo marga daga, Úlfurinn, til að nefna nokkur og einnig er gaman að heyra önnur rokkaðri lög í nettari útsetningum, Geta pabbar, Síðan hittumst við, Nostalgía o.s.fr
Hér verður hlegið og sungið, góða skemmtun :-)