Farfuglatónleikar Hannesarholts
::: Tónleikaröð tileinkuð íslenskum tónlistarnemendum sem nema við tónlistarskóla erlendis :::
Fjórðu tónleikar Farfugla þetta árið eru tónleikar söngkonunnar Jónu G. Kolbrúnardóttur. Tónleikarnir hefjast kl. 18.00.
Jóna G. Kolbrúnardóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2014 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur. Haustið 2014 hélt hún í framhaldsnám til Vínarborgar þar sem hún stundar söngnám við Tónlistarháskólann undir leiðsögn Univ. Prof. Gabriele Lechner. Jóna hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum m.a. hjá Anne Sofie von Otter og Christine Schäfer. Haustið 2016 tók hún þátt í uppsetningu á óperunni Die Kluge eftir Carl Orff þar sem hún söng titilhlutverkið. Jóna kom fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum Ungir einleikarar í janúar síðast liðinn. Hún hefur síðustu tvö sumur komið fram á tónleikum í tónleikaröðinni Pearls of Icelandic Songs í Hörpu. Hún söng bakraddir inn á Biophilia plötu Bjarkar Guðmundsdóttur og tók svo þátt í þriggja ára tónleikareisu sem fylgdi á eftir plötunni.
---
Opið verður í Veitingastofum Hannesarholts á milli viðburða þar sem jólaplatti Hannesarholts er borinn fram ásamt kaffiveitingum.