TÓNALJÓÐ
Sunndagstónleikar 7. janúar kl 14:00
Sunnudaginn 7. janúar ætla Úlfhildur Þorsteinsdóttir, víóluleikari, og Jane Ade Sutarjo, píanóleikari, að halda saman tónleika í Hannesarholti.
Úlfhildur og Jane kynntust í Listaháskólanum þegar þær hófu báðar þar nám árið 2008. Þær hafa báðar lagt stund frekara nám. Jane lauk mastersnámi frá tónlistarháskólanum í Osló vorið 2016. Úlfhildur mun ljúka mastersnámi sínu frá Codarts listaháskólanum í Rotterdam, Hollandi, í sumar. Nú stilla þær saman strengi sína á nýjan leik og flytja verk fyrir víólu og píanó.
Á efnisskránni eru:
R. Schumann Adagio og Allegro
B. Britten Lachrymae
R. Clarke Sonata
Aðgangseyrir: kr. 2500 en frítt er fyrir börn, 12 ára og yngri
Opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir viðburðinn og því tilvalið að líta við í brunch áður en viðburðurinn hefst.