Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Ilmur af jólum - Jólatónleikar - A svæði

$
0
0

ILMUR AF JÓLUM Í GRAFARVOGSKIRKJU 2.DESEMBER 2017

Einstakir & hátíðlegir tónleikar sem hjálpa þèr & þínum að komast í hina einu sönnu jólastemningu.

Hera Björk leiðir okkur inn í jólahátíðina ásamt góðum gestum.

Tónleikarnir “ILMUR AF JÓLUM" eru nú haldnir í fjórða sinn í Grafarvogskirkju. Söngkona HERA BJÖRK hefur veg og vanda af þessari glæsilegu tónlistarveislu og verður engin breyting á því í ár. Hera Björk hefur síðastliðin ár fengið til liðs við sig úrval frábærra söngvara. Á síðasta ári bauð hún meðal annars til sín frönsku Eurovisionstjörnunni Lisa Angell og hlaut hún mikið lof viðstaddra fyrir fallegan söng og framkomu. Í ár endurtekur Hera Björk leikin og núna er athyglin sett á “nýju andlitin” í íslensku söngsenunni.  Við bjóðum velkomin til leiks í Grafarvogskirkju söngvarana ARON HANNES, ARNAR DÓR, ÖLMU RUT, RÓSU BJÖRG og SIGURJÓN ÖRN  sem ásamt BARNAKÓR GRAFARVOGSKIRKJU og HLJÓMSVEIT okkar færustu tónlistarmanna munu færa okkur inn í aðventuna, allt undir styrkri stjórn Ástvalds Traustasonar tónlistarstjóra. 

Allt þetta frábæra fólk, og auðvitað að ógleymdu heita súkkulaðinu hennar mömmu og smákökunum, munu gera þessa stund að einstakri upplifun í jólaundirbúningnum.

Hlakka til að sjá ykkur:-)

Kærleikskveðja,
Hera Björk


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696