Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Alþjóðlegt Orgelsumar - Tónleikar

$
0
0

Stutt lýsing:

Verið velkomin á tónleikaröðina Alþjóðlegt orgelsumar Hallgrímskirkju 2017. Í ár koma fram afburða konsertorganistar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Helgina 5.-6. ágúst mun einn eftirsóttasti konsertorganisti Dana hún Bine Katrine Bryndorf leika á Klais orgel Hallgrímskirkju. Á fyrri tónleikum helgarinnar Laugardaginn 5.ágúst kl. 12 um hádegi  mun Bine flytja tónlist eftir G. Muffat, C.P.E. Bach og Buxtehude.

5. ÁGÚST 2017 KL. 12.00
BINE KATRINE BRYNDORF
HALLARORGANISTI Í FRIÐRIKSBORGARHÖLL
Í HILLERØD, DANMÖRKU
TÓNLIST EFTIR: G. MUFFAT, C.P.E. BACH, BUXTEHUDE

Bine Katrine Bryndorf er hallarorganisti við Friðriksborgarhöllina í Hillerød, um 40 km fyrir norðan Kaupmannahöfn. Hún er einnig gestaprófessor við Royal Academy of Music í Lundúnum og svo kennir hún við Konunglega konservatoríið í Kaupmannahöfn. 

1994-2017 kenndi hún fyrst í Vínarborg og svo í Kaupmannahöfn. Hún varð prófessor 2001 og síðar deildarstjóri við Konunglega konservatoríið. Í ár hefur hún söðlað um og starfar nú sem hallarorganisti við kapelluna í Friðriksborgarhöll við hið heimsþekkta Esaias Compenius orgel. Hún kennir smávegis í Kaupmannahöfn og ferðast reglulega til Lundúna til að kenna þar. 

Bine Katrine, sem á ættir að rekja til Íslands, er heimsþekktur organisti, sérstaklega fyrir túlkun sína á barokktónlist og hún er mjög eftirsótt til að kenna á meistaranámskeiðum og sem dómari í orgelkeppnum. Þá leikur hún einnig mikið á sembal með litlum kammertónlistarhópum. 



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696