
Töfrahurð – Fjölskyldutónleikar
Þrennir tónleikar í áskrift á aðeins 3.900 kr. Verð á staka tónleika er 1.800 kr.
Áskriftarkort er hægt að nálgast í miðasölu Salarins sem er opin alla virka daga kl. 12 - 17 og í síma 5700 400
3. nóvember 2013 kl. 13.00
Töfrahurð: Strengir á tímaflakki
Í tilefni útgáfu tónlistarævintýrisins Strengir á tímaflakkiverður blásið til hátíðartónleika á vegum Töfrahurðar.
Ævintýrið er eftir Pamelu De Sensi og tónlistin er eftir Steingrím Þórhallsson. Það fjallar um fjórar köngulær í strengjakvartett sem fara á tímaflakk og kynnast Vivaldi og Mozart á skemmtilegu ferðalagi. Heyrst hefur að sjálfur Köngulóarmaðurinn, sem er frændi söguhetja bókarinnar, muni mæta og taka þátt. Einnig verða köngulóadansinn Tarantella kynntur til sögunnar og boðið upp á danskennslu.
Ævintýrið kemur út í myndskreyttri bók með geisladiski.
Húsið opnar klukkan 12 en hálftíma síðar hefst fjör í anddyrinu þar sem boðið verður upp á andlitsmálun fyrir tónleikana.
12. janúar 2014 kl. 13.00
Töfrahurð: Vínartónleikar
Töfrahurð fagnar komu nýs árs með árlegum Vínartónleikum fyrir fjölskylduna. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Gissur Páll Gissurarson og Ragnhildur Þórhallsdóttir.
Árlegir Vínartónleikar Töfrahurðarinnar sem slegið hafa í gegn síðasliðin ár verða sem fyrr með veglegu sniði. Jóhannes Strauss og Gioacchino Rossini mæta með nýja og ferska tónlist úr sinni smiðju. Vínarvalsarnir verða leiknir af Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar ásamt fjölda gesta svo sem Gissur Páll Gissurarson tenór, Ragnhildur Þórhallsdóttur sópran og hina sprellfjörugu listamenn frá Sirkús Íslandi. Að sjálfsögðu verður boðið upp á danskennslu svo allir geti dansað vals. Nemendur í Listdansskóla Íslands leiða dansinn af sinni alkunnu snilld.
Kynnar tónleikanna eru Kolbrún Anna Björnsdóttir og Sigurþór Heimisson.
Frá klukkan 12:30 verður boðið upp á barnafordrykk á torginu, sprell og flugelda. Við hvetjum alla, unga sem aldna að koma í galakjólum og smóking.
Trúðar frá Sirkus Íslandi skemmta tónleikagestum í forstalnum fyrir tónleika en einnig verður boðið upp á andlitsmálun.
30. mars 2014 kl. 13.00
Töfrahurð: Barnatöfraflautan
Töfraflautan eftir Mozart er einstakt ævintýri sem gerir fyrstu upplifun barna af óperum ógleymanlega.
Töfraflautan eftir Mozart höfðar einstaklega vel til barna. Hún er ævintýri sem gerir fyrstu upplifun barna af óperum ógleymanlega. Papagenó fuglasnarara og Tamínó prins hefur verið falið það mikilvæga verkefni að frelsa Pamínu prinsessu úr höll Sarastrós konungs. Til þess hafa þeir nauðsynleg verkfæri, töfraflautu og göldrum gætt klukknaspil. Útgáfan sem hér er flutt er glæný umritun eftir Steingrím Þórhallsson eftir forskrift Eberhard Streul.
Flytjendur eru Ágúst Ólafsson , Gissur Páll Gissurarson, Edda Austmann, Snorri Wium, Bjarni Thor Kristinsson, Rósalind Gísladóttir, Gréta Hergils ásamt Kammerhópnum Shéhérazade undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.
Frá klukkan 12:30 verður fjör í anddyrinu og einnig tveir andlitsmálarar sem bjóða upp á ókeypis andlitsmálun.