Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Alþjóðlegt Orgelsumar - Tónleikar

$
0
0

Stutt lýsing:

Verið velkomin á Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2017!
Í 25.sinn verður sumarið í Hallgrímskirkju fyllt af orgelómum. Í ár koma fram afburða konsertorganistar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Helgina 29.-30.júlí mun Willibald Guggenmos dómorganisti í St. Gallen í Sviss flytja fjölbreytta og flotta tónlist. Á fyrri tónleikum helgarinnar í hádeginu laugardaginn 29.júli mun Willibald flytja tónlist eftir Jean Marie Plum, Bourgeois, Garbizu, William Faulkes á dásamlega Klais orgel Hallgrímskirkju sem er stærsta hljóðfæri landsins.



Efnisskrá

 Jean-Marie Plum  1899–1944

Marche Héoïque op. 77

Derek Bourgeois  *1941          Serenade op. 22


Tomás Garbizu  1901-1989        Toccata con Diapente


William Faulkes  1863-1933        Légende et Final

Willibald Guggenmos lauk þremur Mmus-gráðum frá Tónlistarháskólunum í Augsburg og í München í Þýskalandi, í píanóleik, stjórnun og í orgelleik.

Frá 2004 hefur hann verið dómorgansti í St. Gallen í Sviss. Áður var hann 17 ár við St Martin kirkjuna í Wangen í Allgäu og í þrjú ár organisti við dómkirkjuna í München. 

Til hliðar við organistastarfið hefur hann verið eftirsóttur orgelleikari víða um Evrópu og Ameríku, Austurlöndum fjær, Ástralíu og Nýja Sjálandi, við fræg orgel í dómkirkjum og tónleikasölum.

Efnisskrá hans er yfirgripsmikil því hann hefur leikið öll orgelverk margra af stóru tónskáldunum eins og Bach, Duruflé, Franck, Mendelssohn og öll stóru verk Duprés og Messiaens. 

Leikur hans hefur verið hljóðritaður og gefinn út. Mikilvægustu diskarnir eru hljóðritaðir við stærsta orgel Sviss í Engelberg, við hið fræga Cavaille-Coll orgel í Azcoitia á Spáni og við hið þekkta "Hill-Organ" í ráðhúsinu í Sydney í Ástralíu.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696