Á Alþjóðlegu orgelsumri 2017, sem nú er haldið 25. sumarið í röð koma fram afburða konsertorganistar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Helgina 1.-2. Júlí mun Sophie- Veronique Cauchefer, sem er organisti við hina heimsfrægu St. Sulpice kirkju í París flytja tónlist eftir L. Vierne, J. Ibert og síðan mun hún leika spuna en hún er einn færasti spunameistari okkar tíma.
SOPHIE-VERONIQUE CAUCHEFER-CHOPLIN
ORGANISTI ST. SULPICE PARÍS, FRAKKLANDI
TÓNLIST EFTIR: L. VIERNE, J. IBER, S.V.C. CHOPLIN
Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin ólst upp á tónlistarheimili þar sem hún fékk píanókennslu sem lítið barn. Eftir að hafa fengið kennslu í píanó- og orgelleik hjá Gérard Letellier og sótt námskeið í Tónlistarskólanum í Le Mans stundaði hún nám í orgelleik við Þjóðartón¬listarháskólann í París hjá Roland Falcinelli. Hún hlaut fyrstu verðlaun í orgelleik, spuna, hljómfræði og kontrapunkti. Árangur hennar var verð¬launaður árið 1980 af franska menningarmálaráðuneytinu.
Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin var útnefnd organisti Saint de Jean-Baptiste La Salle kirkjunnar í París árið 1983. Árið 1985 bætti hún við sig organistastöðu við hina frægu St. Sulpice kirkju í París en stöðunni deilir hún með Daniel Roth. Árið 1990 varð hún fyrsta konan til að vinna önnur verðlaun í spuna í hinni frægu orgelspunakeppni í Chartres.
Orgelleikur og tónleikaferðir hafa borið Sophie-Véronique víða um heim, um Evrópu, Ameríku, Austurlönd fjær og til Ástralíu. Síðan 1998 hefur hún kennt spuna á meistaranámskeiðum í Frakklandi og víða um heim. Frá 2008 hefur hún verið prófessor í orgelleik við Konunglega tónlistarháskólann í Lundúnum. Sophie-Véronique er reglulega boðið að vera dómari í virtum orgelspunakeppnum enda er hún af talin vera með bestu spunaorganistum í dag.