Extreme Chill Festival Kynna:
Gyða Valtýsdóttir í Fríkirkunni sunnudaginn 9 júlí. Lokatónleikar á hátíðinni.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.10. Húsið opnar kl. 19.10. (Miðin gildir einnig á tónleika Jóns ólafssonar & Futuregrapher, Christopher Chaplin & Stereo Hypnosis)
Gyða Valtýsdóttir hóf tónlistarferilinn á táningsaldri með hljómsveitinni múm. Hún yfirgaf sveitina til að einbeita sér að klassísku tónlistarnámi og lærði meðal annars í Rimsky-Korsakov Conservatory í St. Pétursborg og Hochschule für Music í Basel, þar sem hún lauk meistaranámi í sellóleik hjá Thomas Demenga og frjálsum spuna hjá Walter Fähndrich. Hún leikur reglulega með Shahzad Ismaily, Josephine Foster, Julian Sartorius, Colin Stetson og múm og hefur unnið með fjölda annarra listamanna í gegnum árin, m.a. Ben Frost, A Winged Victory for the Sullen, Efterklang, Dustin O'Halloran, Damien Rice, Ragnari Kjartanssyni, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni o.fl.
Dagskráin í Fríkirkjunni í Reykjavík Sunnudaginn 9 Júlí.
19.30 - 20.10 - Jón Ólafsson & Futuregrapher (IS)
20.20 - 21.00 - Stereo Hypnosis & Christoper Chaplin (IS/UK)
21.10 - 22.00 - Gyða Valtýsdóttir (IS)
Enginn sannur unnandi tónlistar ætti að láta þennan einstaka viðburð framhjá sér fara...
Nánari upplýsingar um alla hátíðina inn á www.extremechill.org