Gestum býðst að njóta kvöldstundar með okkar ástsælu Helenu Eyjólfs, sem fagnaði 75 ára afmæli sínu fyrir skemmstu. Ferill Helenu spannar ríflega 60 ár, en Helena byrjaði að skemmta aðeins 12 ára gömul. Síðastliðið haust gaf hún út sína fyrstu eiginlegu sóloplötu, með fulltingi Karls Olgeirssonar og Jóns Rafnssonar, sem verða með Helenu í Hannesarholti.
Gestum býðst að njóta himneskrar fiskisúpu á undan tónleikunum á kr.2450, sem borin er fram í veitingastofum Hannesarholts á 1.hæð frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is