Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar ætla að halda Þorláksmessutónleika á hinu nýja og glæsilega Hard Rock Cafe Reykjavik!
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög hlotið verðskuldaða athygli og mörg ratað hátt á vinsældarlista landsins.
Á tónleikunum verður hægt að kaupa best of plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, en sú plata kom út í sumar og hefur bara fengist á tónleikum hljómsveitarinnar.