Kvennakórinn Katla ogBartónar, kallakór Kaffibarsins, halda jólastórtónleika í Gamla bíó þann 19. desember.
Tónleikarnir eru til styrktar útmeða og hjálparsímanum 1717, samstarfsverkefni Rauðakrossins og Geðhjálpar sem stuðlar að bættri geðheilsu meðal almennings með því að hvetja fólk, með sérstakri áherslu á ungt fólk, til að tjá sig um andlega líðan sína og leita sér faglegrar aðstoðar þegar á þarf að halda.
Kötlur og Bartónar sameina söngkrafta sína og flytja jólalög úr ýmsum áttum, þjóðleg og óþjóðleg, hæg og hröð, há og lág, súr og sæt, mjúk og hörð. Óvæntir gestir mæta á svæðið, jólakötturinn lætur sig ekki vanta og það er aldrei að vita nema einhverjir jólasveinar láti sjá sig.