Síðustu Hálfvitakvöldin á Græna hattinum þetta árið verða föstudaginn 7. og laugardaginn 8. október næstkomandi. Að því loknu verður hálfvitamótorinn skrúfaður sundur og dreift um allar trissur þar til á vordögum á næsta ári. Í tilefni af því verður hann settur í botn þessi kvöld svo heyrist til Grímseyjar og bremsuförin sjáist úr alþjóðlegu geimstöðinni. Það er samt vissara að vera á staðnum til að sjá fínhreyfingarnar.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.