Dúndurfréttir hafa sannarlega slegið í gegn hjá okkur í Hlégarði og tvisvar sinnum hefur verið uppselt á þá hjá okkur. Það er því vel við hæfi að þeir slái botninn í annars frábæra dagskrá Hlégarðs Í túninu heima 2016. Hljómsveitin mun flytja bland af því besta sem þeir hafa boðið upp á undanfarin ótalin ár. Við bjóðum gesti Í túninu heima að upplifa frábæra miðnæturtónleika í Hlégarði eftir að stórtónleikunum á útisviði lýkur.
Eftir að tónleikum Dúndurfrétta lýkur mun Ólafur Páll Gunnarsson Rokklandskóngur þeyta skífum fram á nótt og enda kvöldið með frábærri tónlist
↧
Dúndurfréttir - Miðnæturtónleikar - Tónleikar
↧