Rúnar Þór hélt uppá 25 ára útgáfuafmæli fyrir skemmstu og voru þeir tónleikar teknir upp, hljóð og mynd og eru að koma út um þessar mundir á CD og DVD.
Nú ætlar Rúnar að fagna þessari útgáfu með tónleikum á Græna Hattinum og víðar þar sem hann tekur öll sín bestu og vinsælustu lög.
Hljómsveitina skipa:
Rúnar Þór gítar, píanó og söngur.
Páll Rósinkrans söngur,
Rúnar Vilbergsson trommur,
Sigurður Árnason bassi og
Tryggvi Hubner gítar