Alþjóðadagur jassins í Hannesarholti
30. apríl kl. 21:00
Húsið opnar kl. 19 fyrir kvöldverðargesti
Brasilíski gítarleikarinn og söngvarinn IFE TOLENTINO á að baki langan og litríkan feril í heimalandi sínu, þar sem hann hefur starfað með ýmsum frábærum listamönnum. Ife hefur verið tíður gestur á Íslandi undanfarin ár í boði ÓSKARS
GUÐJÓNSSONAR, en þeir kynntust í London þegar Óskar var búsettur þar.
Árið 2014 kom út diskurinn VOCÉ PASSOU AQUI, sem þeir félagar hljóðrituðu hér á landi ásamt fleiri íslenskum tónlistarmönnum, og væntanlegur er nýr diskur með lögum Ife, sem sami hópur hljóðritaði á nýliðnu ári.
Á tónleikunum leikur EYÞÓR GUNNARSSON með þeim Ife og Óskari, en hann kemur einnig við sögu á báðum diskunum.
Á efnisskránni eru lög eftir Ife Tolentino í bland við sígild Bossa Nova lög eftir nokkra af helstu höfundum brasilískrar tónlistarsögu.andinu.
Verð kr. 2.500
Húsið opnar klukkan 19:00 fyrir gesti sem vilja gæða sér á LÉTTUM KVÖLDVERÐI áður en tónleikarnir hefjast. Athugið að panta þarf borð með því að hringja í síma 511-1904 eða senda tölvupóst á hannesarholt@hannesarholt.is