Raftónlist mun hljóma í Tjarnarbíói þegar fjórir listamenn Möller Records spila þar laugardagskvöldið 30. apríl. Viðburðurinn er hluti af Teppinu, tónleika- og viðburðaröð Tjarnarbíós. Tónlistarmennirnir sem koma fram eru BistroBoy, EinarIndra, DAVEETH og Gunnar Jónsson Collider.
Tónleikarnir eru lokapunktur á tónleikaferðalagi þeirra milli Belfast, Dublin og loks Reykjavíkur.
"A landmark evening for Belfast's electronic scene" - Igloo Magazine
Tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 20 og eru til kl. 23.
Miðaverð er 2.000 kr.