Í lok sjöunda áratugarins og á fyrri hluta þess áttunda naut færeyska hljómsveitin Harkaliðið gríðarlega mikilla vinsælda hérlendis. Lög með Harkaliðinu voru spiluð í öllum óskalagþáttum útvarpsins sem þá voru ráðandi í spilun á dægurlögum. Íslendingar tóku ástfóstri við lagið "Ólavur Riddararós". Það er ennþá oft spilað í útvarpi. Geisladiskur með laginu hefur selst í hundraðatali hérlendis á þessari öld.
Harkaliðið var órafmagnaður þjóðlagakvartett. Eitt helsta tromp hans var söngkonan Annika Hoydal. Hún hefur sterka, líflega, trausta og auðþekkta söngrödd sem setur kraftmikinn og heillandi svip á öll lög.
Annika fæddist 1945 í Þórshöfn, höfuðborg Færeyja. Hún ólst upp til nokkurra ára í Suður-Ameríku. Síðar bjó hún á Spáni og í Skotlandi.
1973 útskrifaðist hún sem leikkona úr danska Þjóðleiksskólanum og hefur síðan leikið í kvikmyndum. Jafnframt snéri hún sér að farsælum og fjölbreyttum sólóferli. Þar á meðal gerði hún vinsæla og ljúfa barnaplötu, sem og plötu með ljóðum færeyska þjóðskáldsins, Williams Heinesen.
1979 tók Annika þátt í dönsku sönglagakeppninni Melodi Grand Prix. Hún er einskonar hliðstæða við dönsku forkeppni Eurovision. Lag hennar, "Aldan", náði í gegnum öll þrep keppninnar, landaði 4.sætinu og hefur síðan verið eitt af sívinsælum lögum Anniku.
Plötulisti Anniku Hoydal:
Harkaliðið 1 (1967)
Harkaliðið 2 (1968)
Harkaliðið 3: Vinna upp í hrár (1969)
Harkaliðið 4: Harkaliðið (1972)
Fyrir börn og Vaksin (1975)
Annika og Jógvan (1977)
Ættlands míns (1981)
Ferlar í Sjónum / Track í vatninu (1983)
Harkaliðið 5: Mjólkavegurin (1985)
Harkaliðið 6: Nytt Gróft og Gamalt (1986)
Dulcinea (1991)
Havið / The Ocean (1997)
Stjörnurnar vini mína (2000, ljóð eftir William Heinesen )
Endurljós 2015
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.