Hinir árlegu tónleikar Hvanndalsbræðra 2. í jólum eru fyrir löngu orðnir fastur liður í jólahaldi norðlendinga og þar verður engin breyting á í ár og nú ætla þeir allir að koma saman og spila það besta sem hljómsveitin hefur sent frá sér á þeim 13 árum sem hún hefur verið starfandi. Gleðin mun verða allsráðandi og hvetjum við fólk til að mæta og skemmta sér með okkur.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.