Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Hátíðarhljómar við áramót - 3 trompetar, orgel og pákur

$
0
0

31. desember Gamlársdagur

17.00 Hátíðarhljómar við áramót.

Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel og pákur.

Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Eggert Pálsson pákuleikari og Björn Steinar Sólbergsson organisti Hallgrímskirkju flytja glæsileg hátíðarverk frá barokktímanum, m.a. J.S. Bach ( Tokkata og fúga í d-moll) og Albinoni ( Adagio).
 
Þetta  er í 23. sinn sem Listvinafélag Hallgrímskirkju býður upp á tónleika undir yfirskriftinni Hátíðarhljómar við áramót. Áramótastemmningin byrjar með hátíðarhljómum þeirra félaga, enda njóta þessir tónleikar gríðarlegra vinsælda og hafa þeir leikið fyrir fullu húsi á gamlárskvöld allt frá vígslu Klais orgelsins 1992. Lúðraþytur og trumbursláttur hafa um aldir tengst hátíðum. Fyrirmyndir þess má finna í elstu sálmabók kirkjunnar, Saltaranum, þar sem Drottinn er lofaður með bumbum og málmgjöllum. Lúðraköll – fanfarar tengjast bæði konunglegum lífvörðum og herkvaðningum af ýmsum toga og í kirkjunni hafa þessi hljóðfæri meðal annars verið notuð þegar upprrisu Krists er fagnað á páskum og með dýrðarsöng englanna á Betlehemsvöllum.
 
Flest verkin eiga uppruna sinn á barokktímabilinu. Á efnisskránni eru fanfarar og hátíðleg tónlist. Meðal þeirra eru Forleikur að Te Deum eftir Charpentier (EBU lagið)  Björn Steinar leikur hina þekktu Tokkötu í d-moll eftir Bach. Þá má ekki gleyma hinu fræga Adagio eftir Albinoni sem Ítalinn Giazotto umritaði.

Ásgeir Hermann Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson luku allir tónlistarnámi við Tónlistarskólann í Reykjavík áður en þeir fóru í framhaldsnám í Bandaríkjunum. Ásgeir lauk BM prófi frá Mannes College of Music í New York, Eiríkur lauk BA prófi frá Merklee College of Music í Boston og MFA gráðu frá Californian Institute of the Arts í Los Angeles og Einar BM prófi frá Indiana University. Í dag eru þeir allir þrír fastráðnir í Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að mjög virkir í tónlistarlífi höfuðborgarsvæðisins. Þeir hafa allir leikið með Kammersveit Reykjavíkur og Hljómsveit Íslensku óperunnar, leikið í ýmsum stórsveitum, svo sem Stórsveit Ríkisútvarpsins og Stórsveit Reykjavíkur auk þess sem Eiríkur er einn af stofnfélögum Cabut hópsins. Þá hafa þeir leikið einleik með þessum hljómsveitum. Einnig kenna þeir trompetleik við ýmsa tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Eggert Pálsson stundaði nám á píanó og slagverk við Tónlistarskólann í Reykjavík og hélt þaðan til Vínar í Austurríki þar sem hann lagði stund á slagverksnám við Listaháskólann í Vín. Hann hefur lengi verið fastráðinn pákuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands auk þess að taka þátt í mörgum hliðum íslensks tónlistarlífs undanfarna þrjá áratugi. Hann er félagi í slagverkshópnum Benda og Kammersveit Reykjavíkur. Hann hefur einnig leikið með tónlistarhópnum Caput og er félagi í sönghópnum Voces Thules sem flytur margar tegundir söngtónlistar, helga sem heiðna.

Björn Steinar Sólbergsson, organisti við Hallgrímskirkju og skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar leysir Hörð Áskelsson kantor Hallgrímskirkju af á þessum tónleikum. Björn Steinar stundaði framhaldsnám í Róm hjá James E. Göettsche og í París hjá Susan Landale. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár og vann að uppbyggingu tónlistarstarfs þar. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima og erlendis og leikið einleik meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. var hann Bæjarlistamaður Akureyrar og hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Á þessu ári nýtur hann starfslauna íslenska ríkisins til 6 mánaða.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.