Söngvaskáldin Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur munu halda jólatónleika í nóvember og desember, undir yfirskriftinni Eitthvað fallegt. Tónleikarnir heita eftir samnefndri hljómplötu þeirra, sem kom út árið 2013 hjá Dimmu útgáfu.
Á tónleikunum kennir ýmissra grasa úr jólagarðinum, bæði verða flutt sígild íslensk jólalög og nokkur frumsamin lög eftir listafólkið og er áherslan lögð á látleysi, einfaldleika og einlægni í flutningi. Allur hljóðfæraleikur er í höndum tríósins og er hljóðheimnum þannig haldið eins lágstemmdum og mögulegt er.
Ragnheiður, Kristjana og Svavar leggja uppúr því að stemmningin á tónleikunum verði líkust kvöldvöku eða góðri samverustund og verða m.a. lesnar jólasögur og fundið upp á ýmsum gleðileik milli jólalaganna. Þetta á því að vera hin fínasta stund fyrir alla fjölskylduna.
Miðaverð á tónleikana er kr. 3.500.
Hluti miðaverðs tónleikanna rennur til góðs málefnis.
Kristjana, Ragga og Svavar Knútur