Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Kvöldstund með Þór Breiðfjörð - Tónleikar

$
0
0
Mynd

Þór Breiðfjörð sneri aftur til Íslands með hvelli eftir farsælan feril erlendis á annan áratug. Ríflega tíundi hver íslendingur sá hann á sviði sem Jean Valjean í söngleiknum Vesalingunum og margir karlmenn eru enn fúlir yfir að hann grætti þá fyrir framan eiginkonurnar í lokaatriðinu.

Þór var kjörinn söngvari ársins á Grímunni 2012 og á eftir fylgdu hverjir stórtónleikarnir á fætur öðrum. Hann vermdi Eldborgarsal Hörpu í sérstakri tónleikauppfærslu af Vesalingunum, söng með Frostrósum fyrir jólin og Vestmannaeyjalögin í "Yndislega eyjan mín" í Hörpu en ný útgáfa af lagi Gylfa Ægissonar "Minning um mann", í flutningi Þórs, Stefáns Hilmarssonar, Eyþórs Inga og Magna, var margar vikur á vinsældalista Rásar 2. Glögg eyru tóku eftir að hann söng Glenn Miller í Eldborg síðastliðið sumar en landsmenn fengu síðan að heyra þá tónleika í fullri lengd í útvarpinu á gamlárskvöld.

Nú gefst Íslendingum tækfæri til að setjast niður með söngvaranum í nálægð, heyra bestu lögin úr mörgu því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur og heyra sögur af ferli sem enginn hefði getað ímyndað sér með þennan dreng utan af landi sem gekk með draum um að syngja úti í hinum stóra heimi.

Rödd Þórs hefur ótrúlega breidd, mátt og tilfinningu og lætur engan ósnortinn. Þór er fyrst og fremst sviðsmaður og nýtur þess að spjalla við áhorfendur og deila lögum sem hann hefur dálæti á. Með Þór á sviðinu verður píanóleikarinn landskunni, Kjartan Valdemarsson.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.