
Hljómsveitin Tilbury var sett saman af trommaranum Þormóði Dagssyni (Skakkamanage, Jeff Who?, Hudson Wayne) sumarið 2010. Upphaflega var um sólóverkefni að ræða sem nefndist Formaður Dagsbrúnar en fljótlega eftir að upptökur hófust á fyrstu breiðskífunni, Exorcise, leit hljómsveitin Tilbury dagsins ljós.
Sveitin spilar eitthvað sem kalla mætti dramatískt rafskotið popp og ról sem einkennist af hljóðgervlum Kristins Evertssonar (Valdimar) og sixtís rafmagnsgítarhljómi Arnar Eldjárns (Brother Grass). Bassaleikarinn Guðmundur Óskar (Hjaltalín) prýðir hljóminn með fransk-ættuðum bassalínum og trymbillinn Magnús Trygvason Eliassen (Sin Fang, Amiina, Moses Hightower) bindur svo allt saman með dínamískum trommuleik sem fer í allar áttir.
Um þessar mundir er Tilbury að leggja lokahand á aðra breiðskífu sína sem stefnt er á að gefa út í október næstkomandi hjá Record Records.
Auk Tilbury kemur Snorri Helgason fram ásamt hljómsveit sinni.