Miði á Rocky Dawuni á 2.900 kr. í stað 3.500 kr.
Gildir frá 7-9. ágúst
Reggí tónlistarmaðurinn Rocky Dawuni kemur fram ásamt hljómsveit á tónleikum í Gamla bíó sunnudaginn 30. ágúst og verður hann þar í góðum félagsskap því AmabAdamA ætlar að hita upp.
Rocky Dawuni er mikils virtur tónlistamaður víða um heim en hann notar tónlistina til þess að berjast fyrir mannréttindum, koma skilaboðum sínum á framfæri ásamt því að tengja fólk af ólíkum menningarheimum. Hann er aktivisti sem berst fyrir friðaruppbyggingu og mannréttindamálum í Afríku, en sjálfur er hann frá Ghana. Hann er m.a. sendiherra Sameinuðu Þjóðanna og talsmaður fleiri hjálparsamtaka.
Tónlist hans er undir áhrifum listamanna á borð við Fela Kuti, Bob Marley, Michael Franti, K'naan og Matisyahu og hefur Rocky gefið út 6 plötur, sú síðasta í mars á þessu ári og heitir hún Branches of the Same Tree. Rocky Dawuni var á lista CNN yfir topp 10 tónlistarmenn frá Afríku og hefur hann deilt sviði með stjörnum eins og Stevie Wonder, Peter Gabriel, Bono, Jason Mraz Janelle Monae og John Legend. Þá hefur tónlist hans m.a. hljómað í sjónvarpsþáttunum ER, Weeds og Dexter sem og í tölvuleikjum FIFA.
Það er ekki á hverjum degi sem virtur erlendur reggí listamaður leggur leggur leið sína til Íslands og er þetta viðburður sem enginn aðdáandi reggí og afrobeat tónlistar með sál ætti að láta framhjá sér fara.