Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Með blik í auga - Lög unga fólksins - Lög unga fólksins

$
0
0
Með blik í auga setur upp sýninguna „Lög unga fólksins“ á Ljósanótt 2015 en sýningar hópsins eru orðnar ómissandi hluti af dagskrá hátíðarinnar. Að þessu sinni verður horft til þessa vinsæla útvarpsþáttar og skoðuð sú togstreita og þau átök sem urðu milli þeirra ungu og hinna sem eldri voru. „Hvar er Tom Jones?“ heyrðist þá iðulega þegar þau eldri könnuðust ekki við lögin sem spiluð voru. Söngvarar sýningarinnar verða þau Stefanía Svavarsdóttir, Egill Ólafsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Pétur Örn Guðmundsson. Sögumaður er Kristján Jóhannsson og hljómsveitarstjóri er Arnór Vilbergsson.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696