Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Madalina Pasol - Tónlistarhátíð unga fólksins

$
0
0
Madalina Pasol
Tónlistarhátíð unga fólksins

Madalina Pasol fæddist árið 1976 inn í mikla tónlistarfjölskyldu í Búkarest. Faðir hennar var einleikssellóleikari við rúmensku útvarpshljómsveitina og afi hennar var um 40 ára skeið einleikari á kontrabassa. Jafnframt hefur bróðir hennar leikið einleik á selló með ýmsum hljómsveitum og kammerhópum.

Pasol stundaði nám við Tónlistarmenntaskóla George Enescu í Búkarest og síðar við Universität der Künste í Berlín, þaðan sem hún lauk einleikaraprófi. Hún hefur einnig sótt námskeið hjá fjölda heimsþekktra píanóleikara, þar á meðal hjá Hans Leygraf, Günter Ludwig, Martin Hughes, György Sebök og Claude Frank.

Pasol kom fyrst fram í beinni útsendingu í útvarpi átta ára gömul og lék í fyrsta skipti einleik með hljómsveit ári síðar. Hún hefur verið afar virk í tónleikahaldi allar götur síðan og komið fram á tónleikum, ýmist ein eða með öðrum, víða um heim, meðal annars í Þýskalandi, Svíþjóð, Austurríki og Japan. 

Efnisskrá:

Sergei Rachmaninoff (1873-1943)
Prelúdíur
Op. 3 nr. 2 í cís-moll 
Op. 32 nr. 12 í gís-moll 
Op. 32 nr. 8 í a-moll 
Op. 23 nr. 3 í d-moll 
Op. 23 nr. 4 í D-dúr 
Op. 32 nr. 10 í h-moll 
Op. 32 nr. 5 í G-dúr 
Op. 23 nr. 7 í c-moll
Op. 23 nr. 5 í g-moll
Op. 23 nr. 2 í B-dúr 

Paul Constantinescu (1909-1963)
Joc Dobrogean 

Maurice Ravel (1875-1937)
Alborada del gracioso 

Frederic Chopin (1810-1849)
Andante spianato et grande polonaise brillante op. 22


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Sapos para colorear


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


“BAHAY KUBO HUGOT”


Re:Mutton Pies (lleechef)


Ka longiing longsem kaba skhem bad kaba khlain ka pynlong kein ia ka...


EASY COME, EASY GO


HOY PANGIT, MAGBAYAD KA!