Ljótu hálfvitunum þykir alltaf hátíð að spila á Græna hattinum. Þegar tónleikana ber upp á sjálfa Verslunarmannahelgina hlýtur hátíðarskapið að nálgast hættumörk. En fyrirhyggja er ekki sterkasta hlið Hálfvitanna, svo þeir ætla að mæta á Hattinn laugardagskvöldið 1. ágúst, hefja leik klukkan 23 og sjá svo til hvenær þeir hætta.
Þeim sem eru vanir því að hinir Ljótu spili 2-3 kvöld í röð á þeim Græna er bent á að þetta eru stakir tónleikar. Mögulega einstakir, hver veit?
Miðaverð er 3.500 kr. og forsala í fullum gangi í Eymundsson, Hafnarstræti og á midi.is.